
Kvika eignastýring stofnar nýjan 8,5 milljarða lánasjóð – ACF V slhf.
Kvika eignastýring hefur lokið fjármögnun á nýjum sjóð sem ber nafnið ACF V slhf. Sjóðurinn er samlagshlutafélag sem kemur að fjármögnun fyrirtækja. Sjóðurinn mun fjárfesta í skuldabréfum og lánum til fyrirtækja með veð í fasteignum.
Harpa, nýr framtakssjóður Kviku eignastýringar
Fjármögnun Harpa Capital Partners II (HCPII) lauk nú á dögunum en tekið var við áskriftum fyrir rúmlega 30 milljónir breskra punda og er það yfir efri mörkum þess sem stefnt var að. Alls eru rúmlega 50 fjárfestar í sjóðnum, en þar á meðal er Kvika banki. Sjóðurinn veitir íslenskum fagfjárfestum tækifæri á að fjárfesta í spennandi fyrirtækjum í Bretlandi við hlið Kviku, auk reyndra breskra fjárfesta og rekstraraðila.
Kvika eignastýring ræður þrjá nýja starfsmenn
Kvika eignastýring hefur ráðið þrjá nýja starfsmenn. Kolbeinn Þór Bragason hefur verið ráðinn sem viðskiptastjóri í einkabankaþjónustu, Örvar Snær Óskarsson hefur verið ráðinn sem sjóðstjóri blandaðra sjóða og Arnar Bogi Jónsson sem sérfræðingur í deild áhættustýringar, fjármála og rekstrar.
Að bera virðingu fyrir eignum viðskiptavina
Peningar skipta talsverðu máli í samfélagi okkar, enda eru flestir háðir reglulegri innkomu þeirra og hver einasti dagur hefur sinn verðmiða. Umhverfið hvetur okkur til að reyna að mynda sparnað og sumum hefur auðnast að eignast umtalsverða fjármuni sem þarf að ávaxta og vernda.
Kvika eignastýring áfram bakhjarl Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Kvika eignastýring og Sinfóníuhljómsveit Íslands hafa framlengt samstarfssamning sinn til næstu ára en Kvika eignastýring hefur verið bakhjarl hljómsveitarinnar frá árinu 2021.
Kvika eignastýring er framúrskarandi og til fyrirmyndar
Kvika eignastýring hf. er í hópi íslenskra fyrirtækja sem Creditinfo veitir viðurkenningu sem Framúrskarandi fyrirtæki tólfta árið í röð.
Rotovia hf. kaupir á mexíkóska fyrirtækið Ollin Plastics
Rotovia, sem er leiðandi fyrirtæki í hönnun og framleiðslu á hverfissteypum lausnum (e. rotomoulding solutions), hefur fest kaup á mexíkóska fyrirtækinu Ollin Plastics sem er stórt framleiðslufyrirtæki og sérhæft í hverfissteyptum afurðum.
Kvika eignastýring leitar að sjóðstjóra og sérfræðingi í sjóðastýringu
Kvika eignastýring hefur auglýst tvær stöður lausar til umsóknar. Um er að ræða sjóðstjóra blandaðra sjóða og sérfræðing í sjóðastýringu.